ShiskeBobs ShiskeBlogg

21.6.07

gjörningur gunnars goða

þetta er afsökunarbeiðni.
þó að ég hafi ekki mikla trú á að nokkur maður lesi þetta blogg mitt af einhverri áfergju þá finnst mér ég knúinn til að biðjast afsökunar á einu.
ég er nefnilega fallinn í gryfju sem að var upphaflega ástæðan fyrir því að ég vildi aldrei byrja að blogga til að byrja með og það er að eiga síðu þar sem að síðasta færsla er nokkurra mánaða gömul...
en örvæntið ekki góða fólk því að síðan var upphaflega hugsuð fyrir mig að skrifa þegar ég var sem fastastur í skólanum, frelsi til að skrifa það sem að mig langaði en ekki það sem að ég var endalaust skikkaður til að skrifa af kennurum og öðrum þrælahöldurum.

planið er því að byrja að nýju þegar skólaárið hefst að nýju í ágúst...
...plús að ég er ekki með internetið heima hjá mér

17.4.07

hver er maðurinn?

hver er ég?
ég er maður sem ferðast eins lítið innanlands og ég kemst upp með...hef aungvar skýringar á þessu aðrar en þær að landsbyggðin heillar mig lítt.
engu að síður tók ég mig til og ferðaðist til akureyrar um páskana með föruneyti hringsins í heila fjóra daga, skal fúslega viðurkenna reyndar að óhófleg drykkja dró mig þangað frekar en nokkuð annað. varð reyndar fyrir vonbrigðum með það að akureyrin er verulega slakur skemmtibær miðað við borg óttans. partí-kári klárlega reddaði helginni.
hver er ég?
ég er maður sem reykir ekki, hætti þeim óþverra fyrir nokkrum árum og hef aldrei litið til baka.
engu að síður hef ég tekið upp á því að vera að reykja síðustu vikur, mér til mikillar óánægju. skil ekkert hvað er í gangi og virðist níkótíndjöfullinn hafa náð tangarhaldi á mér enn einu sinni, ég er þó fullviss að þegar ég tek mig til og geri mig reiðubúinn að kljást við djöfsa beri ég sigur úr býtum.

þannig að ég er ennþá ég, fólk þarf ekki að óttast að gamli ég sé farinn á brott, floginn í veg...ég þarf bara að kippa nokkrum smáatriðum í lag.

2.4.07

200

200 orð virðast vera mælikvarðinn á tungumálakunnáttu í háskóla reykjavíkur.
nánast öll verkefni sem mér hafa verið sett fyrir upp á síðkastið á öðrum málum en móðurmálinu hafa gert kröfur til þess að ég skrifi texta, 200 orð, um eitthvað og/eða annað t.d. sögupersónur, blaðagreinar og jafnvel framtíðarplön tuttugu ár fram í tímann. mér þætti gaman að heyra hvaðan þessi tala kom, hverjum datt þessi mælikvarði í hug og afhverju endilega 200, voru aðrir prímatar en menn að ná að komast inní skólakerfið á 100 orðum eða minna?
mér finnst það vera rugl, það er vel hægt að sjá hvort að viðkomandi hafi nægilega kunnáttu í umræddu tungumáli í töluvert færri orðum en 200, til dæmis verður þessi færsla í færri orðum en 200 og það verða fáir sem efast um að ég kunni sitthvað fyrir mér í íslenskunni.
en aðallega skal ég viðurkenna það að megnið af óánægju minni stafar af því að mér leiðist að skrifa svona mikið á tungumálum sem ég skil ekkert í.
reyndar þegar ég hugsa um það þá endaði þessi færsla á að vera nákvæmlega 200 orð og því er grundvöllur minn fyrir mótmælunum fallinn um sig sjálfan... kannski ég hugsa þetta betur næst.

16.3.07

slef, slen, hor og annar óbjóður

þoli ekki að verða veikur og vill meina að af þeirri ástæðu einni saman verð ég það ferlega sjaldan.
slapp samt ekki við það í þessari viku, ónei.
fyrst varð ég veikur af því að lesa um enn einn pjúrítanann sem þurfti að að kalla litla 14 ára stelpu hóru og skækju í opnum fjölmiðli á netinu, væntanlega gert til að ríða feitri öldu klámumræðunnar sem átti að skapa vinsældir en kom svo í ljós að flestir höfðu bara ekkert á móti því...allaveganna enginn með viti.
svo í dag varð ég verulega veikur þegar ég varð vitni að einni mestu heimsku sem ég hef þurft að horfa uppá í langan tíma.
einhver á ísafirði í alvörunni hringdi og kvartaði yfir auglýsingarborða frá coke zero þar sem stóð eitthvað á þessa leið "afhverju ekki kynlíf með zero forleik"...ástæðan? ótti við að þetta myndi vekja upp ofbeldi í ungum drengjum...djóklaust, var í fréttum á vísi.is.
ok, mér persónulega finnst þetta soldið fullorðins og á ekki alveg heima á hvaða götuhorni sem er en aldrei myndi ég nenna að hringja og kvarta yfir því. og ef að ég myndi gera það hefði ég nú manndóm í mér að segja sönnu ástæðuna (að ég væri ósyndugur pjúrítani) en ekki eitthvað svona þrugl.

og já, svo varð ég í alvörunni veikur með öllu tilheyrandi en það fór ekkert svo í taugarar á mér enda leið það hjá.

5.3.07

enn um samviskusemi...

mér tókst það aftur.
maður finnur ekki fyrir því þegar maður er samviskusamur frá öðrum nema þá að maður tekur stundum eftir skrítnum svipum sem er skotið á mann þegar fólk skilur ekkert í manni...ég fæ oft svona svipi...
ekki það að ég er að reyna að vera eitthvað góður sérstaklega, ég bara hef mínar sannfæringar og geri mitt allra besta til að lifa eftir þeim.

ein af þeim er að ég kæri mig ekki mikið um hluti sem ég á ekki skilið.
lenti í því um daginn að ég fékk til baka próf úr stærðfræði sem ég hafði tekið vikuna áður...sat vel og lengi og starði á blaðið...var samt ekki að horfa á einkunnina mína, sem var níu, heldur aðallega á mistök hjá kennaranum í yfirförinni...hann hafði lagt á mig nánast einn heilann fyrir mistök.
ég horfði lengi á blaðið og hugsaði með mér að enginn þyrfti að vita neitt...taktu bara einkunnina og þegiðu.
svo var ég spurður hvað ég fékk á prófinu
ég fraus...hvað fékk ég? góð spurning...
ég sagði ekki neitt heldur gekk að borðinu og afsakaði mig.
sagði að hann hefði gert mistök við yfirferðina á prófinu.
benti honum á villuna...hann horfði á mig og svo á prófið.
jújú...þarna blasti hún við, hann tók upp penna og strokaði yfir níuna mína og setti átta í staðinn.
bekkurinn, sem hingað til hafði tekið eftir mér fara upp að borðinu með prófið en ekki mikið verið að fylgjast með, horfði á mig. þau vissu hvað þau höfðu séð rétt í þessu en voru ekki alveg að fatta það...
loks kom einhver með niðurstöðu í málið
"varstu að láta lækka þig!?"
eina sem ég gat sagt var, já, ég kæri mig ekki um einkunn sem ég á ekki skilið og þaut skömmustulegur aftur í sætið mitt

ég ætla samt að enda þetta á að segja að ég fékk á endanum níuna mína aftur því að kennarinn hafði gert önnur mistök sem hækkuðu mig aftur upp

23.2.07

hundar og annað hyski

mér leiðist fáfræði og óumburðarlyndi (það er orð er það ekki?)
mér leiðist það gífurlega.
því miður þá bý ég á landi sem á heilan stafla af fólki sem er stútfullt af hvorutveggja. við virðumst á stundum vera fólkið sem var ekki sótt í leiðinni þegar pjúrítanar lögðu af stað í leiðangur til ameríkunnar frá ríðandi, sjúgandi og sleikjandi múgnum í evrópu.

það hefur nú lengi verið við lýði að hundar hafa verið bannaðir innan borgarmarka reykjavíkur og þekki ég það mjög vel sjálfur, undantekningar eru þó veittar með hörðum reglum. en ég vissi ekki að klámhundar væru óvelkomnir líka. en svo er víst.
gaman er að lesa fréttir um fólk sem segir að nú loks hafi rödd litla mannsins fengið að ráða, þjóðin náði vilja sínum fram með mótmælum.
verst að rök mótmælendanna voru svo fáránlega illa reist á kolröngum grunni að ég er viss um að það þurfti að útskýra fyrir áðurnefndum klámhundum að, jú, þeir eru að tala um ykkur.

gerir fólk sér ekki grein fyrir að þessi iðnaður er löglegur í sínu heimalandi? í landi þar sem að barnaklám, nauðganir og mannsal er alveg jafn ólöglegt og hér? ég ætla mér að halda í það að umrætt fyrirtæki fengi alls ekki að starfa ef að það væri hægt að tengja það við framleiðslu á barnaklámi eða að sannað hefði verið á þá að þeir stunduðu mannsal. annars væri ég að taka að mér hlutverki dómara, sem ég hef engin réttindi til.
gerir fólk sér ekki grein fyrir að með því að úthúða þessu fólki, sem samkvæmt öllum pappírum er að stunda það sem þau velja sér að stunda, lifa sínu lífi eins og þau velja sér að lifa því, er verið að segja að þeirra lífsskoðun, þeirra lífsval er rangt og okkar er rétt? það er enginn munur á þessu og að úthúða samkynhneigðum manni fyrir að elska sitt eigið kyn, kalla hann kynvilling, neita að viðurkenna að þetta er hans lífsval!
þarna er verið að traðka á rétti fólks til að velja.

auðvitað tengist þessi iðnaður í heild sinni ýmsu hryllilegu, en það gera líka hér um bil allir iðnaðir. sum föt eru framleidd með barnaþrælkun, banna þá öll föt? demantar margir hverjir eru fengnir með drápum, peningar af þeim notaði til að fjármagna vopnakaup í stríðslöndum...banna líka þá sem eru fengnir með löglegum aðferðum? hnífa er hægt að nota til að myrða, banna þá?

mér finnst þetta hafa sýnt að ísland er þröngsýnt, fáfrótt og fordómafullt land...til hamingju, við erum fífl.

14.2.07

merking hluta

fólk á það til að hlusta...en heyra ekki neitt
ég var nefnilega að heyra ferlega gott dæmi um fólk sem hlustar greinilega en heyrir ekki mikið.
fyndna var að ég fékk tvö góð dæmi með tveggja daga millibili...
annarsvegar var kærasti vinkonu minnar sem vildi meina að nick cave snilldin where the wild roses grow væri lagið þeirra...
hitt var um par sem lét spila fyrrnefnt lag í brúðkaupinu sínu...
ég allaveganna myndi hugsa mig tvisvar um ef að ég væri stelpa og kærastinn minn myndi halda því fram að where the wild roses grow væri "lagið okkar"...
myndi allaveganna bókað tékka hvort hann vissi nú örugglega um hvað lagið væri...og ef svo væri, hlaupa.
myndi persónulega ekki mikið velja lög af plötu sem heitir murder ballads, en það er bara ég.