ShiskeBobs ShiskeBlogg

27.1.07

samviskusemi eða heimska...allaveganna annaðhvort

ég lenti í því um daginn að ég fór með vinkonu minni á kaffihús, sem væri alls ekki til frásagnar eitt og sér, heldur pöntuðum við okkur kók...
en það er samt ekki sagan. málið er að ég var býsna útkeyrður eftir daginn og kannski ekki alveg með fullu viti, en það var þannig að þegar við gerðum okkur tilbúin til að fara þá gengum við bara út...án þess að borga.
daginn eftir setti ég mig í samband við hana og spurði hreint út hvort hún hefði borgað reikninginn...hún neitaði því...ég mundi ekkert sérstaklega eftir því að hafa ekki borgað hann en mundi hinsvegar ekki eftir að hafa borgað hann.
svipurinn sem ég fékk þegar ég gekk inná staðinn og tilkynnti að ég hefði verið þarna kvöldið áður og líklegast gengið frá reikningi óviljandi var þurr.
afgreiðslustúlkan sagði hálf fruntalega að hún myndi ekkert eftir því hvort ég hefði greitt hann eða ekki, ég sagðist nokkuð viss um að svo væri ekki og heimtaði að fá að greiða hann núna.
það var greinilegt að hún gerði ekki ráð fyrir að ég myndi segja þetta, hún varð það hissa, var greinilega töluvert vanari tuði frá fólki.
hún sagði ekkert þegar hún tók kortið, hún bara horfði á mig...en þurrleikinn var farinn úr svipnum. hún sagði heldur ekkert í fyrstu þegar hún var að strauja kortið en svo kom: það eru þá 560kr.
560kr! hugsaði ég, fyrir tvær kók!? fjandans rán!
svo þegar færslan var samþykkt sagði hún: voðalega ert þú samviskusamur.
hún sagði það svona eins og hún hálfpartinn bjóst við að færslunni yrði synjað og á sama tíma myndi ég hlaupa út öskrandi: hahaha hélstu í alvörunni að ég ætlaði að borga þetta auli!
ég þakkaði henni fyrir að finnast það og sagði að líklegast væri uppeldinu að kenna.

og ég vil einmitt kenna mömmu um þetta, hún er líka svona ömurlega samviskusöm. keyrði eitt sinn í bónus til að skila 500kr sem hún hafði fengið vitlaust til baka...500kr!...bónus! eins og í baugsveldið!
þvílíkur kjáni ha?

3 Comments:

Blogger Kiddi said...

Á maður ekki alltaf að borga þegar maður fær varninginn? Var þetta ekki bara hennar klúður?

5:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert greinilega ennþá sami englabossinn og í gamla daga(",)Still the Gunnar I know(",)

9:33 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Skulda þér Aroma Kók herra samviskusamur !! hehehehe

10:20 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home