undraheimur stærðfræðinnar
stærðfræði þarf ekki alltaf að vera leiðinleg...
ég geri mér grein fyrir að flestir hafa ekki mikinn áhuga á að lesa skemmtilega hluti um stærðfræði en það eru nokkur atriði sem ég hef rekist á sem mér finnst nógu fyndin eða skrýtin til að deila þeim með fólki.
til dæmis rakst ég á grein þar sem verið var að útskýra hvernig væri hægt að reikna furðulega nákvæmt gildi á pí með því að henda pulsum...djóklaust. þetta er alvöru tilraun sem gengur út á það að ef þú velur þér pulsur sem eru t.d. 15cm langar, notar límband til að setja strik með 15cm millibili og hendir svo pulsunum inná svæðið þá verður tvisvar sinnum fjöldinn sem þú kastaðir deilt í fjöldann sem lenti á striki furðulega nálægt pí...reyndar, ef nógu mörgum pulsum er hent, verða skekkjumörkin ekki nema u.þ.b. 0.07...
annað sem ég rakst á var heilaverkjandi grein um það að 0.999... = 1
"..." þýðir endalaust.
þetta er fengið með þeirri staðhæfingu að 1/3 = 0.333...
og ef að þú margfaldar báðar hliðar með 3 þá færðu 3*1/3 = 3*0.333...eða 1 = 0.999...
þetta er einnig hægt að sanna með algebru fyrir þá sem hafa áhuga
annað magnað sem ég hef lært um tölur er að ef þú velur þér tölu, hérumbil hvaða tölu sem er, og leggur við hana sömu tölu bara afturábak, og tekur svo útkomuna af því, snýrð henni við og leggur við útkomuna þína, þá á endanum færðu tölu sem þú getur lesið afturábak og áfram...dæmi: 427+724 = 1151+1511 = 2662
bara svo að ég taki það fram þá er ekki verið að kenna okkur að henda pulsum, eða að búa til flottar tölur með samlagningu hérna í hr...við eigum að vera að læra eitthvað, en ég var ekki að fylgjast með

5 Comments:
Let's test this theory of yours.
7324 + 4237 = 11561 + 16511 = 28072
You're so full of it.
Eða er ég bjáninn fyrir að prófa þetta?
æi þið eruð svo miklar lúðar múhahahahaha
ég sagði: á endanum færðu tölu...tvisvar er ekkert alltaf nóg, höldum áfram með töluna þína:
28072+27082 = 55154+45155 = 100309+903001 = 1003310+0133001 = 1136311! sem er tala sem þú getur lesið afturábak og áfram...eh?
Guess I'm the loser here.
JEMINN!!!!!!
Skrifa ummæli
<< Home