hundar og annað hyski
mér leiðist fáfræði og óumburðarlyndi (það er orð er það ekki?)
mér leiðist það gífurlega.
því miður þá bý ég á landi sem á heilan stafla af fólki sem er stútfullt af hvorutveggja. við virðumst á stundum vera fólkið sem var ekki sótt í leiðinni þegar pjúrítanar lögðu af stað í leiðangur til ameríkunnar frá ríðandi, sjúgandi og sleikjandi múgnum í evrópu.
það hefur nú lengi verið við lýði að hundar hafa verið bannaðir innan borgarmarka reykjavíkur og þekki ég það mjög vel sjálfur, undantekningar eru þó veittar með hörðum reglum. en ég vissi ekki að klámhundar væru óvelkomnir líka. en svo er víst.
gaman er að lesa fréttir um fólk sem segir að nú loks hafi rödd litla mannsins fengið að ráða, þjóðin náði vilja sínum fram með mótmælum.
verst að rök mótmælendanna voru svo fáránlega illa reist á kolröngum grunni að ég er viss um að það þurfti að útskýra fyrir áðurnefndum klámhundum að, jú, þeir eru að tala um ykkur.
gerir fólk sér ekki grein fyrir að þessi iðnaður er löglegur í sínu heimalandi? í landi þar sem að barnaklám, nauðganir og mannsal er alveg jafn ólöglegt og hér? ég ætla mér að halda í það að umrætt fyrirtæki fengi alls ekki að starfa ef að það væri hægt að tengja það við framleiðslu á barnaklámi eða að sannað hefði verið á þá að þeir stunduðu mannsal. annars væri ég að taka að mér hlutverki dómara, sem ég hef engin réttindi til.
gerir fólk sér ekki grein fyrir að með því að úthúða þessu fólki, sem samkvæmt öllum pappírum er að stunda það sem þau velja sér að stunda, lifa sínu lífi eins og þau velja sér að lifa því, er verið að segja að þeirra lífsskoðun, þeirra lífsval er rangt og okkar er rétt? það er enginn munur á þessu og að úthúða samkynhneigðum manni fyrir að elska sitt eigið kyn, kalla hann kynvilling, neita að viðurkenna að þetta er hans lífsval!
þarna er verið að traðka á rétti fólks til að velja.
auðvitað tengist þessi iðnaður í heild sinni ýmsu hryllilegu, en það gera líka hér um bil allir iðnaðir. sum föt eru framleidd með barnaþrælkun, banna þá öll föt? demantar margir hverjir eru fengnir með drápum, peningar af þeim notaði til að fjármagna vopnakaup í stríðslöndum...banna líka þá sem eru fengnir með löglegum aðferðum? hnífa er hægt að nota til að myrða, banna þá?
mér finnst þetta hafa sýnt að ísland er þröngsýnt, fáfrótt og fordómafullt land...til hamingju, við erum fífl.

3 Comments:
Já, þetta mál er allt búið að vera frekar hallærislegt. Femínistar mættu alveg fara hætta nota orðið "klám" fyrir ofbeldi, því klám er það sem er löglegur iðnaður. Það ætti að vera fundið upp nýtt orð fyrir ólölegt "klám".
Annars er ég á bömmer yfir því að hafa misst af tækifærinu að geta djammað með klámstjörnum.
sama hér...lanny barbie *slef*
uhum...ég er samt enginn klámhundur sko
Passið ykkur ef Steingrímur J kemst í ríkistjórn kemur Internetlöggan og lætur klámhunda eins og ykkur hverfa
Skrifa ummæli
<< Home