ShiskeBobs ShiskeBlogg

23.2.07

hundar og annað hyski

mér leiðist fáfræði og óumburðarlyndi (það er orð er það ekki?)
mér leiðist það gífurlega.
því miður þá bý ég á landi sem á heilan stafla af fólki sem er stútfullt af hvorutveggja. við virðumst á stundum vera fólkið sem var ekki sótt í leiðinni þegar pjúrítanar lögðu af stað í leiðangur til ameríkunnar frá ríðandi, sjúgandi og sleikjandi múgnum í evrópu.

það hefur nú lengi verið við lýði að hundar hafa verið bannaðir innan borgarmarka reykjavíkur og þekki ég það mjög vel sjálfur, undantekningar eru þó veittar með hörðum reglum. en ég vissi ekki að klámhundar væru óvelkomnir líka. en svo er víst.
gaman er að lesa fréttir um fólk sem segir að nú loks hafi rödd litla mannsins fengið að ráða, þjóðin náði vilja sínum fram með mótmælum.
verst að rök mótmælendanna voru svo fáránlega illa reist á kolröngum grunni að ég er viss um að það þurfti að útskýra fyrir áðurnefndum klámhundum að, jú, þeir eru að tala um ykkur.

gerir fólk sér ekki grein fyrir að þessi iðnaður er löglegur í sínu heimalandi? í landi þar sem að barnaklám, nauðganir og mannsal er alveg jafn ólöglegt og hér? ég ætla mér að halda í það að umrætt fyrirtæki fengi alls ekki að starfa ef að það væri hægt að tengja það við framleiðslu á barnaklámi eða að sannað hefði verið á þá að þeir stunduðu mannsal. annars væri ég að taka að mér hlutverki dómara, sem ég hef engin réttindi til.
gerir fólk sér ekki grein fyrir að með því að úthúða þessu fólki, sem samkvæmt öllum pappírum er að stunda það sem þau velja sér að stunda, lifa sínu lífi eins og þau velja sér að lifa því, er verið að segja að þeirra lífsskoðun, þeirra lífsval er rangt og okkar er rétt? það er enginn munur á þessu og að úthúða samkynhneigðum manni fyrir að elska sitt eigið kyn, kalla hann kynvilling, neita að viðurkenna að þetta er hans lífsval!
þarna er verið að traðka á rétti fólks til að velja.

auðvitað tengist þessi iðnaður í heild sinni ýmsu hryllilegu, en það gera líka hér um bil allir iðnaðir. sum föt eru framleidd með barnaþrælkun, banna þá öll föt? demantar margir hverjir eru fengnir með drápum, peningar af þeim notaði til að fjármagna vopnakaup í stríðslöndum...banna líka þá sem eru fengnir með löglegum aðferðum? hnífa er hægt að nota til að myrða, banna þá?

mér finnst þetta hafa sýnt að ísland er þröngsýnt, fáfrótt og fordómafullt land...til hamingju, við erum fífl.

14.2.07

merking hluta

fólk á það til að hlusta...en heyra ekki neitt
ég var nefnilega að heyra ferlega gott dæmi um fólk sem hlustar greinilega en heyrir ekki mikið.
fyndna var að ég fékk tvö góð dæmi með tveggja daga millibili...
annarsvegar var kærasti vinkonu minnar sem vildi meina að nick cave snilldin where the wild roses grow væri lagið þeirra...
hitt var um par sem lét spila fyrrnefnt lag í brúðkaupinu sínu...
ég allaveganna myndi hugsa mig tvisvar um ef að ég væri stelpa og kærastinn minn myndi halda því fram að where the wild roses grow væri "lagið okkar"...
myndi allaveganna bókað tékka hvort hann vissi nú örugglega um hvað lagið væri...og ef svo væri, hlaupa.
myndi persónulega ekki mikið velja lög af plötu sem heitir murder ballads, en það er bara ég.

7.2.07

auðtrúa

ég skal fyrstur viðurkenna það að ég er ferlega auðtrúa manneskja. af þessum sökum kann ég ferlega illa við að vera blekktur og fyrirlít lygar.
lendi nú ekki oft í því að vera blekktur með illum tilgangi en stundum særir fólk án þess að ætla sér það...ég er reyndar engin undantekning frá því...

þegar ég var um 14 eða 15 vetra djammaði ég gífurlega vel og mikið (það má deila um vel, en ekki um magnið). í skólanum eftir eina djammhelgina þar sem mikið og gott teiti hafði átt sér stað hjá einni bekkjarsystur minni tók ég snemma eftir því að fólk horfði mikið á mig og það var greinilegt að þónokkrir af skólafélögum mínum virtust ekki tala við mig.
þessu kunni ég engan skilning á og setti mig við eitt af borðunum í mötuneytinu þar sem nokkrir skólafélagar sátu. annaðhvort sat skólasystir mín sem hafði haldið partíið við borðið og fór um leið og ég kom eða að ég var fræddur um að hún væri reið út í mig, allaveganna komst ég að því að ég var illa liðinn eftir helgina.
ég spurði hvers vegna í ósköpunum hún væri reið út í mig en fékk engin svör í fyrstu. ég var spurður með miklum vantrúarsvip hvort mér væri alvara, að ég skildi í alvörunni ekki afhverju hún gæti verið reið út í mig. að lokum fékk ég svar...
mér var sagt að ég hefði verið svo ölvaður í partíinu, sem var satt, að ég hefði "létt á mér" í blómapott sem stóð í inngangnum heima hjá henni, og nú voru foreldrar hennar óðir út í hana.
ég þverneitaði en leitaði grimmt í minnisbankanum. slitrótt minnið gaf mér samt engar frambærilegar niðurstöður en þó að ég hefði engar minningar um verknaðinn ætlaði ég mér nú samt að gangast við honum og taka ábyrgð á því sem ég hafði gert.
hófst handa við að grátbiðja um fyrirgefningu...fékk ekki.
eftir þónokkurn tíma fékk ég þó niðurstöðu í málið...
vinir mínir voru að gera grín í mér, ég hafði verið það ölvaður að ég var fyrirtaks fórnarlamb grikks.

blótaði mér fyrir að vera svona auðtrúa, en fannst grikkurinn fyndinn.